....and those are the days of my life....

Maronb.is

20.02.2006 12:12:35 / maronkb

.... Fyrsta blogg ársins ....

.... Fyrsta blogg ársins og ég veit ekki einu sinni hvað ég á að segja,,,, það er einhver rit-skrekkur í mér....

.... Lítið af merkilegum fréttum af mér nema bara það að ég er að fara að flytja í vesturbæjinn, í pínu littla íbúð sem ég var að kaupa. í þessum töluðu er ég bara að bíða eftir að söluumboð frá eigandanum berist í DHL pósti frá úganda.

.... Já ein sorgarfrétt líka Galantinn gerði eiganda sínum lífið leitt á ljósum krínglumírarbrautar og miklubrautar, þar sem hann drap á sér og vildi ekki fara aftur í gang. Eigandin þurftir að dúsa þar í 20 mín meðan að hjálp barst og var þetta akkúrat á háannartíma eða kl 17:30. Galantinum var umsvifalaust hent útí kuldan næsta dag og er komin nýr aftaki sem mun sjá um hans verk um óákveðin tíma.


» 19 hafa sagt sína skoðun

24.12.2005 16:16:51 / maronkb

.... Bara obbó lítill skilaboð ....

.... Óska ykkur öllum gleðilegra Jóla og takk fyrir liðið ....


» 31 hafa sagt sína skoðun

01.12.2005 02:13:54 / maronkb

....Tími til kominn að taka upp seríurnar....

.... Ég er alveg komin í brjálað jólaskap. Ég veit ekki hvort það sé jólabæklingunum frá Rúmó að kenna eða hvort það sé bara vegna þess að ég er alveg svakalegt jóla barn í mér....

.... Get bara hreinlega ekki beðið eftir að fá smá vott af stressinu sem fylgir jólaundirbúningnum og get heldur ekki beðið eftir jólamatnum hennar mömmu og að ógleymdu að fá að hitta systur mínar tvær sem búa í Svíðjóð og Englandi....

.... Í tilefni þess að það er kominn 1. des og að ég er í svona miklu jólaskapi ætla ég að fara og skreyta kópavoginn þegar ég er búin í vinnunni á morgun....

.... Hvar eru pottþétt jól diskarnir mínir?


» 82 hafa sagt sína skoðun

27.11.2005 03:35:38 / maronkb

.... ATH ....

.... Þið verðið bara að skoða þetta video ....

.... Reglan er mjög einföld = HAFA HLJÓÐIÐ EINS HÁTT OG MÖGULEGT ER.... (hlusta vel á það sem hann segir)

:^):^)Ekki fyrir hjartveika:^):^)

http://dvorak.org/blog/images/GhostlyCarAd.wmv


» 114 hafa sagt sína skoðun

18.11.2005 12:33:26 / maronkb

.... Vill byrja á því að óska sjálfum mér til hamingju með afmælið ....

.... Ég á afmæli í dag, ég á afmæli í dag. ég á afmæli sjálfur ég á afmæli í dag....

.... wuhú.......


» 102 hafa sagt sína skoðun

13.11.2005 18:03:53 / maronkb

.... Tvær helgar í röð ....

 

.... Hæ, vill byrja á því að setja spurningamerki við vega og bílastæðaskipulag kópavogsbæjar, bara komst ekki í bílinn minn í gær… nei það var bara ekki séns…. Skreið á endanum og það tókst. Það er neffla þannig að bílastæðið hjá mér er í svona halla og þegar það frystir þá verður alveg ótrúlega hált…. Hef ákveðið að leggja bíltruntunni einhvert annað næst…..

 

 

.... Tvær helgar í röð án þess að smakka dropa,, hí á ykkur sem sögðu að þetta væri e-h vandamál…. Kidstöff….

 

 

.... Ég er gersamlega að missa mig í sápuóperu, ógeðisþáttunum á Sirkus…. Finnst þeir allir snilld….

 

.... Eini þátturinn sem eg man eftir í augnablikinu sem mér finnst alveg mætti fara út af dagskrá Sirkus er Idol Extra….. Allir þættir eins…. Hundleiðilegt….  Svabbi Örn:,, og hvað sögðu þau?” Einhver:,, bara að þau villdu sjá mig áfram ehurnadmeaijdfbla” eða ,, bara að þetta var ekki nógu gott sko”

 

 


» 105 hafa sagt sína skoðun

02.11.2005 19:03:14 / maronkb

.... Óska eftir 4 miðum á Sálina í Köpen ....

.... Halló og takk fyrir síðast. Það var nú ekki mikið mál að skemmta sér í þessum stormi sem var síðustu helgi....

.... Það verður eitthvað lítið gert um þessa helgi, enda kominn tími til að taka smá auka hleðslu á batteríin. Ég er að fara að byrja á törn á morgun þannig að ég ætla bara að vinna alla næstu helgi....

.... Hey, það fer bara að styttast í það að ég verði 23 ára, vá hvað þetta líður hratt. Ég er að hugsa um að halda bara uppá það svona í ljósi þess að ég á afmæli á föstudegi og er líka í fríi (það gerist nú ekki oft)....

.... En bætist við ástæðurnar til þess að sleppa við að læra heima, það nýjasta er framlag símans með bíótvíið. Bara hættulega mikil snilld. Hræddur um að símareikningur landsmanna eigi eftir að rjúka upp úr öllu valdi.

.... Ef e-h á miða á Sálina í köpen. þá vantar mig 4 miða fyrir systir mína. Ef e-h er ekki viss um að þeir nenni að fara þá get ég bara sagt þeim að það verður hundleiðinlegt og það er bara betra fyrir ykkur að selja mer miðana....

.... Hvað er að fretta af Jónínu Ben eiginlega? Ætlaði hún ekki að fara að ráðast á OgVodafone eða e-h? er hún bara búinn að gefast upp?


» 12 hafa sagt sína skoðun

28.10.2005 01:46:04 / maronkb

.... Þetta er bara svona,,,,, alveg eins og þú villt vinurinn ....

….Hæ, vill byrja á því að byðjast afsökunar á færslunni fyrir framan. Maður á ekki að blogga fullur…. Var að skoða þetta, stendur ekkert nema ,,skiluru,, og ,,sko,,….

….svona fyrir þá sem eru að velta því fyrir sér hvernig síðasta helgi endaði þá held ég að það sé nóg að segja að helgin var bara frábær í alla staði, skemmti mér vel á fimmtudaginn, föstudaginn og laugardaginn. Dansaði svo mikið um helgina að ég léttist um 20 kg. Geðveikt…

….En það er bara helgi á morgun…. Veit ekki alveg hvað skal gera??? Frekar sveitt veður spá fyrir helgina…. Svo hvell sprakk á bílnum mínum þegar ég var á leiðinni úr vinnunni áðan, rétt fyrir utan akranes…. Þannig að það lítur út fyrir það að ég sé fastur á skaganum… Er ekkert ball eða e-h á laugardaginn??? Einhverjar uppástungur???


» 103 hafa sagt sína skoðun

21.10.2005 03:26:48 / maronkb

.... í alvöru talað, ég rotaði hann ....

....Nei, hæ hæ. Bara svona ná ath með fyrirsögninni sko...Hey fyrsta bloggið mitt svona frekar í því. Það verður gaman að sjá hvað kemur út úr þessu. Já já ég veit að það er bara fimmtudagur en come on,,,, það er Airways helgi marr.... smá eftir partí hérna í kópavoginum..... fólkið nýfarið og kallinn bara með u2 slane castle í botni og bara góður sko... þá er nú alveg komin tími til að blogga....

....Það má segja það að þessi helgi verði ekki í verri kantinum, frekar en aðrar helgar..... það er morgundagurinn og dagurinn eftir það eftir...

....Pravda er staðurinn,,, þar er heitasta bank bankið sko...

....Ef einhver á svona grátt armband og er tilbúinn að láta það, endilega hafðu samband...

....Annars er ég að hugsa um að kíkja á billjardbarinn á morgun með Hafsteini og detta svo bara í það á Laugardaginn. ......

....Ég var jafnvel að hugsa um að halda e-h partí á morgun.... er e-h stemmning fyrir því?


» 7 hafa sagt sína skoðun

11.10.2005 02:16:04 / maronkb

.... Mín skoðun líðandi stundar (undirstrika líðandi stundar) ....

 

.... Ég er í þannig skapi núna að mér finnst feministar vera ógeðslega svalir og ég vorkenni Jónínu Ben, eða bara að ég sakna mömmu rosanlega mikið.

.... Byrjum aðeins á feministunum: Ég hélt að þetta væri hópur fólks sem tæki skoðunum sínum mjög alvarlega. Oftast nær í málefnum sem skiptu littlu sem engu máli t.d eins og með fegurðarsamkeppnir eða eitthvað svoleiðis. Þ.e.a.s eins og þegar dæma átti fólk eftir útliti sínu, söfnuðust feministarnarnir saman, filltu á hitabrúsana sína og settu upp skiltin og mótmæltu. Þar sem ég er mjög illa að mér í öllu sem við kemur pólitík, stefnuskrá stjórnmála- og annara baráttuflokka þá fór ég inn á síðu feministafélags Íslands og kynnti mér stefnuskrá þeirra. Í ljós kom að  þetta er bara flokkur sem sérhæfir sig í  að berjast fyrir málefnum kvenna. Merkilegt nokk.... Líka ef maður segist vera Feministi þá lendir maður ekki í riflildum við e-h harðan vinstri eða hægri mann um Reykjarvíkur flugvöll eða um e-h stjórnmála skandala... Svo hlýtur að vera góð pikkupp lína að segjast vera feministi. Hvaða kona vill ekki mann sem er að berjast fyrir réttindum kvenna....  

 .... Jónína Ben: Veit ekki alveg um hvað málið snýst hjá blessuðum Baugi og fröken Ben, en ég sá hana næstum því fara að gráta í kastljósinu í kvöld..... og ég verð bara að segja að ég fann pínu lítið til með henni greyjinu...., ég er bara greinilega þannig gerður að ég er mjög viðkvæmur fyrir tárum...... það dugar á mig ..... áfram Jónína Ben ,, negldu helvítin “

 


» 100 hafa sagt sína skoðun

06.10.2005 21:29:00 / maronkb

.... Já, svona tekur hann það ....

.... Hey, sá þið Íslenska pipparsveininn. Ó my god, kjánahrollur, kjánahrollur og aftur kjánahrollur. Alltaf þegar ég horfi á eitthvað svona sem er frekar óþæginlegt að horfa á get ég ekki hamið mig við að vera allur skakkur og skældur í framan, en get samt ekki hætt að horfa. Ég er samt búin að ákveða það að ég ætla að halda með Heklu, handbolta stelpunni sem er frænka hans Stefáns Orra, systir hans Ríkaharðs Daðasonar (gaurinn sem skoraði á móti Frökkum) og jafnframt barnsmóðir hans Gumma Þórs.  

.... Get samt ekki ýmundað mér að það sé þæginlegt að horfa uppá barnsmóður sína og fyrrverandi elsku vera að rembast við að heilla einhvern gaur, þannig að ég ætla að votta Guðmundi alla mína samhúð.

 .... Hey, októberfest á morgun í háskólanum, vill þakka Hadda fyrir að láta mig vita af því áðan svo að ég fái pottþétt ekki frí á morgun. Ég kem bara eftir vinnu haha.....

 .... Hey, árshátíð Járnblendifélagsins á laugardaginn á Grand Rock, mæti líka þá bara eftir vinnu.

.... Heyrðu.. já og smá fréttir af henni Jessicu minni, það er neffla þannig að hún sefur ekki hjá til að fá hlutverk í myndum...það er neffla þannig að leikstjórar vilja skipta á blíðu hennar fyrir hlutverk, en hún setur bara fótinn niður, sko hún Jessica mín er engin drusla.

.... Alveg bara sætust í heimi .... 


» 11 hafa sagt sína skoðun

03.10.2005 11:34:20 / maronkb

.... Helgaruppgjör ....

.... Allir búinir að jafna sig. (það er nú gott).

.... Mögnuð helgi að baki, mikið borðað og mikið drukkið, sumir meira en aðrir og ætla ég ekki að fara neitt nánar út í það :haha:

.... Hélt matarboð á laugardaginn, heppnaðist rosanlega vel (ekki nema gestir og gangandi hafi verið að ljúga ánægju sínni fyrir kurteisissakir). Gat náttla ekki boðið öllum sem mig langaði til að bjóða sökum fermetrarýmis. En voru samt allveg 12 með mér og núllárabörnunum. Ég eldaði líka allt of, allt of mikið og vill ég kenna reynsluleysi um.... :$

.... Eftir matarboðið fórum við í innfluttningspartí hjá Elvari og Heiðari. Þegar við komum á svæðið voru þeir allveg búnir að gera nágranna sína crazý þannig að ferðinni var flótlega haldið niður í bæ. Fórum á Pravda í 2 tíma og ég og Rut dönsuðum eins og e-pillu sjúkklingar allan tíman. Aðrir voru ekki alveg eins ákafir í dansinum og tóku sér barferðir og pásur af og til.

.... Var með nætur gesti þessa nótt, en þegar við komum heim þá var ég búin að tína lyklunum mínum og þurfti að brjótast inn heima. Vill þakka nágrannakonu minni fyrir lánið á tönginni og eldhúsglugganum mínum fyrir að hafa ekki brotnað meira en hann gerði. :haha::haha:


» 6 hafa sagt sína skoðun

29.09.2005 04:54:45 / maronkb

…. Stund Sannleikans: I-Hluti: Jafnrétti kynjanna ….

 

…. Nú er ég farinn að flétta blöðum mun meira en áður, ástæðan er einfaldlega sú að póstkassinn hjá mér er alltaf troðinn af dagblöðum og tímaritum sem ágæt er að flétta í gegnum þegar það er eitthvað leiðinlegt í sjónvarpinu. Undantekningarlaust er frétt í hverju einasta blaði um jafnrétti kynjanna, sem er að sjálfsögðu eftir einhverja kvennréttindar kerlinguna sem er alveg búin að fá nóg af öllum þessum troðningi að hálfu karlmanna. Ég er alveg kominn með uppí kok af þessu væli um misrétti kynjanna og hvað við karlar höfum það miklu betra heldur en konur.

…. Ef við hugsum aðeins dæmið til enda þá held ég að konur átti sig ekki á því hvað það er í rauninni erfitt að vera karlmaður. Tökum dæmi: Ég las grein í tímaritinu Hér og Nú, sem er náttla banki staðreyndanna. Greinin fjallaði um  hvernig týpur konur fýla,,,, ok, bíðið aðeins, það eru aldrei neinar greinar um hvernig týpu karlar fýla, það er vegna þess að þær eru einfaldlega ekki til!!!! Hvers vegna? Jú, það er vegna þess að það eru engar sérstakar týpur fyrir karlmenn. Það eina sem konur þurfa að hugsa um til þess að ná í karlmann er bara að líta vel út, málið dautt, karlinn hennar. En nei, við karlarnir þurfum að vera einhverjar sérstakar týpur. Og það er alveg sama hvernig týpa karlmaður vill vera, í öllum flokkum þarf að uppfylla þessi atriði:

  • Vel til fara. (Útlitslega hliðin)
  • Sjarmerandi (Gáfur, Feiminn, Fyndinn, vinsældir og svo framv.)
  • Sjálfsöryggi ( Virðist vera mjög mikilvægt)
  • Frami (Menntun, ríkur eða fátækur ef að við á, völd og svo framv.)

…. Fríðleiki virðist ekki skipta miklu máli hjá kvennmönnum, svona heilt yfir, þær líta á það sem bonus. En það er akkúrat öfugt hjá körlum, þeir líta á allt öfangreint sem aukaatriði og það er mjög persónubundið hvað er bonus og hvað ekki.

Hvernig geta konur sagt að karlar séu einfaldir þegar þeir þurfa að hugsa um svo miklu meira en þær þegar kemur að því að tæla hitt kynið,,,,, Hvað varð um þetta jafnrétti núna ha, ha, ha?

…. Svo eru konur líka alltaf að öfundast yfir því að þær geti ekki pissað standandi og þurfa að bera barn undir belti…… það er nú bara kidstuff miðað við þetta held ég.

…. Þetta eru náttla bara smá pælingar sko en I-Hluta af stund sannleikans er nú lokið, takk fyrir takk:haha:

 


» 20 hafa sagt sína skoðun

23.09.2005 04:00:46 / maronkb

.... Köttur fæst gefins, frí heimsending í boði ....

…. Loksins, loksins. Úr 300 og yfir í 200, já kallinn fluttur. Ég er nú samt hérna að blogga frá AK 300, er enþá að bíða eftir kallinum sem ætlar að fikza síman hjá mér. Nú geta nágrannarnir andað léttar. Engin meiri iðnaðar hljóð að minni hálfu í bili. Allt tipp topp, endilega komið og kíkið í kaffi og kleinur.

 …. Smá vandamál samt: það er þannig að strákurinn sem að leigði hjá mér skildi eftir köttinn sinn. Kötturinn hengur fyrir utan íbúðina hjá mér og mjálmar fyrir framan svalahurðina hjá mér og í hvert skipti sem ég opna hurðina þá hleypur hann inn og nuddar sér utaní allt draslið mitt. Ég er búinn að reyna að hringja í strákinn en svo virðist sem hann sé búin að skipta um númer eða e-h. Hvað í andskot… á ég að gera? Þannig að ef þú skyldir detta inn á bloggsíðuna hjá mér Daði Páll þá er orðinn hund leiður á kettinum þínum og bið ég þig vinsamlegast um að sækja kvikindið!!!

 …. Heyr ég fór í skólan í gær og ég er ekki en búin að kaupa mer bækur og hafði bara ekki rassgat að gera í tíma, var bara eitthavð að horfa út í loftið og svona þá fór ég að pæla í því að það eru bara alveg fullt af flottum stelpum í tíma með mér….. held að maður verður að vera svolítið duglegur við að kíkja í vísindaferðirnar og svona í vetur….. ob bob bob & oboj oboj

 …. Svona að lokum vill ég segja það að ég er með ljúfan og góðan kött til gefins, sem er mjög lífsglaður og mjög kelinn við dauða hluti. Veit ekki hvort þetta sé fress eða læða, enda skiptir það engu máli. Áhugasamir endilega látið vita…….


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Dagsetning
18. mars 2010
....Athygglisvert, í meira en meðallagi....
....Virkir Fjölskyldumeðlimir í blogmenningunni....